Tvöfaldur skammtur af Skúla skelfi

Nú eru komnar út tvær nýjar bækur um hann Skúla skelfi. Heitir önnur þeirra Skúli skelfir rænir bankann og hin heitir Skúli skelfir vekur upp draug.

Skúli er afburðasnjall en algert hrekkjusvín og svo mikill óþekktarangi að hann er eiginlega hálfgerð plága. Foreldrar hans reyna vissulega að siða hann til en án nokkurs árangurs. Skúla hefur þó hvarvetna tekist að sigra hug og hjörtu lesenda jafnt sem gagnrýnenda með stríðni sinni og strákapörum.

Bækurnar um Skúla skelfi hafa notið mikilla vinsælda hjá íslenskum börnum ekki síður en annars staðar, enda er Skúli óborganlega uppátækjasamur og brögðóttur – sannkallaður grallari.

Breski höfundurinn Francesca Simon skrifar bækurnar og Tony Ross myndskreytir. Bækurnar eru prentaðar með stóru letri og henta sérlega vel fyrir unga lesendur á aldrinum 5–9 ára.

Þýðandi bókanna er Guðni Kolbeinsson.

INNskráning

Nýskráning