Páll Björnsson sagnfræðingur skrifar ítarlegan ritdóm um sjálfsævisögu Svavars Gestssonar, Hreint út sagt, í nýjasta hefti tímaritsins Sögu. Hann rekur efni hennar vandlega og ræðir það fram og aftur og niðurstaða hans er mjög jákvæð: „Bókin er vel skrifuð, villur vart finnanlegar, stíllinn léttur og hraður og frásögnin auk þess launfyndin á köflum. Ljósmyndirnar gegna einnig mikilvægu hlutverki í að segja sögu aðalpersónunnar. Sjálfsævisögur hafa ekki komið út margar í seinni tíð, en þessi bók verður e.t.v. til þess að fleiri hugsi sér til hreyfings. Sumir hafa fundið sjálfsævisögum það til foráttu að höfundarnir vilji falla í þá freistni að upphefja sjálfa sig. Slíkt getur hins vegar einnig komið fyrir í venjulegum ævisögum. Þótt höfunda sjálfsævisagna geti misminnt um einhver atriði er það upplifun viðkomandi sem skiptir meira máli, þeirra persónulegu sjónarhorn. Með sjálfsævisögum verða nefnilega til heimildir sem nýtast munu um ókomna tíð. Auk þess afhenti Svavar Þjóðskjalasafni öll sín einkaskjöl til varðveislu. Auðvitað má deila um mikilvægi einstakra atriða en hin smæstu og hversdagslegustu geta stundum veitt betri innsýn í hlutina. Frásögn Svavars af kvöldfundum með Gunnari Thoroddsen og Ólafi Jóhannessyni, báðum íklæddum langröndóttum náttfötum (bls. 230), hefði t.d. varla ratað inn í ævisögu sem annar hefði ritað.“