Steinunn við Gröf

Heimanfylgja lesin í heild sinni

Dagana 9.-14. ágúst mun Steinunn Jóhannesdóttir, höfundur bókarinnar Heimanfylgju, dvelja norður í Skagafirði og lesa fyrrnefnda bók frá upphafi til enda, fyrst í gömlu torfkirkjunni í Gröf á Höfðaströnd, síðan í Auðunarstofu á Hólum í Hjaltadal.

Flutningurinn er upptaktur að Hólahátíð og einn þeirra viðburða sem tengjast minningu Hallgríms Péturssonar. Á Hólahátíð verður að þessu sinni lögð áhersla á skagfirskan uppruna Hallgríms, uppvöxt hans á biskupsstólnum og þau mótandi áhrif sem hann varð þar fyrir. Steinunn mun einnig halda fyrirlestur um efnið á Hólahátíð.

Steinunn segir að hana hafi langað að gefa Skagfirðingum nýtt tækifæri til þess að kynnast Hallgrími Péturssyni sem barni og unglingi á uppvaxtarslóðum hans. „Færa hann nær nútímafólki í þessu víðáttumikla héraði sem á sér svo ríka og merka sögu. Og tækifærið til þess er einmit núna þegar þess er minnast að 400 ár eru liðin frá fæðingu þessa höfuðskálds okkar Íslendinga.“

Í haust er von á annarri bók eftir Steinunni um Hallgrím en hún heitir Jólin hans Hallgríms og er afskaplega hugljúf saga fagurlega myndskreytt af Önnu Cyntiu Leplar.

Lestur hefst í torfkirkjunni í Gröf á Höfðaströnd laugardaginn 9. ágúst kl. 14.00 og stendur með stuttum hléum til kl.17:50. Lestri er haldið áfram í Auðunarstofu á Hólum í Hjaltadal sunnudaginn 10. ágúst kl. 20:00 og stendur með einu hléi til um það bil 22. Næstu daga hefst svo lesturinn kl. 16 og stendur fram eftir degi.

INNskráning

Nýskráning