Hanne-Vibeke Holst

Hanne-Vibeke í heimsókn

Það er skammt stórra högga á milli hjá aðdáendum danska rithöfundarins Hanne-Vibeke Holst. Nýjasta skáldsaga hennar, Iðrun, kom út í vikunni sem leið og nú berast fregnir af því að hún sé væntanleg til landsins í næsta mánuði á vegum Norræna hússins og Forlagsins, nánar til tekið þann 19. febrúar.

Áhugamenn um bækur hennar ættu að merkja við þann dag og líka þann 20. því hún fer af landi brott aftur 21. febrúar. Við segjum nánari fréttir þegar dagskráin hennar hefur verið skipulögð.

INNskráning

Nýskráning