Norræna húsið var stappfullt í gærkvöldi – setið í öllum sætum í sal og bókasafni og staðið fyrir aftan þau – þegar danski rithöfundurinn Hanne-Vibeke Holst spjallaði við þýðanda sinn, Halldóru Jónsdóttur, um nýjustu skáldsögu sína, Iðrun. Hún sagði frá bókinni og tengdi efni hennar skemmtilega við sína eigin móðurfjölskyldu. Til dæmis hafði afi hennar verið í andspyrnuhreyfingunni eins og ættfaðirinn Thorvald í Iðrun og amma hennar hafði ævinlega verið bitur út í ástkonuna sem hann átti meðan hann fór huldu höfði í Kaupmannahöfn – eins og Gerda eiginkona Thorvalds. Eftir að móðir Hanne-Vibeke lést, rithöfundurinn Kirsten Holst, fann Hanne vandlega falinn bunka af ástarbréfum sem ekki voru skrifuð af föðurnum, Knud Holst, heldur öðrum manni, og í ljós kom að í fjölskyldu Hanne-Vibeke sjálfrar leyndust alvarleg leyndarmál og lygar. Þó að móðirin vissi ein af þeim lygum hefur Hanne-Vibeke trú á því að þær hafi eitrað samband móðurinnar við dæturnar þrjár. Lesendur Iðrunar eiga létt með að tengja þær pælingar við bókina.