Stefán Máni

Húsið lifnar við

Frábærar fréttir úr bíóheimum! Gengið hefur verið frá kaupum á kvikmyndarétti að spennusögunni Húsið eftir Stefán Mána. Þá er næsta spurning … hver mun leika Hörð Grímsson?

Húsið yrði önnur skáldsagan eftir Stefán Mána sem ratar á hvíta tjaldið en samnefnd mynd byggð á sögu hans Svartur á leik var frumsýnd á liðnu ári. Höfundur segir að stefnan sér tekin á 2015 fyrir frumsýningu Hússins, og ekki sé loku fyrir það skotið að sjónvarpsþættir séu líka í pípunum.

Það er nýstofnað framleiðslufyrirtæki, RVK Studios, sem keypti kvikmyndaréttinn. Þar eru þó engir aukvisar innanstokks því forkólfar þess eru Baltasar Kormákur, Magnús  Viðar  Sigurðsson og Sigurjón Kjartansson.


INNskráning

Nýskráning