Heilbrigði trjágróðurs

Handbók allra sem vilja hugsa vel um garðinn sinn!

Sitkalýs, mófetar, ertuyglur og fleiri trjáskaðvalda vilja engir garðeigendur finna í sínum garði. Út er komin bókin Heilbrigði trjágróðurs sem allt áhugafólk um garðrækt ættu að kynna sér!

Heilbrigði trjágróðurs er aðgengileg og gagnleg handbók, ætluð þeim sem rækta tré sér til ánægju og nytja og öðrum sem hafa áhuga á náttúru Íslands. Hún bætir úr brýnni þörf því ýmsir nýir trjáskaðvaldar hafa borist til landsins á síðustu árum.

Í upphafi bókarinnar er vistkerfum skóga lýst, fjallað um áhrif ýmissa umhverfisþátta á vöxt og viðgang trjágróðurs og gerð almenn grein fyrir meinsemdum á trjám og runnum. Þá er farið ítarlega yfir helstu sjúkdóma og meindýr sem herja á trjágróður á Íslandi, um 70 tegundir alls, og skaðvöldunum lýst í máli og myndum. Í bókarlok er fjallað um varnar- kerfi trjáa og aðgerðir til að draga úr skaða á trjám.

Höfundarnir, Guðmundur Halldórsson skordýrafræðingur og Halldór Sverrisson plöntusjúkdómafræðingur, eru meðal virtustu vísindamanna á sínu sviði. Auk þeirra ritar Edda Sigurdís Oddsdóttir jarðvegslíffræðingur um skógarvistkerfið.

Miðvikudaginn 4. júní verður efnt til útgáfuhófs í salarkynnum Garðræktarfélags Íslands, Síðumúla 1, kl. 17. Höfundar halda þar stutt erindi og svara fyrirspurnum. Sömuleiðis verður bókin til sölu og léttar veitingar í boði. Allir velkomnir!

„Maður verður að rækta garðinn sinn.“ – Birtíngur

INNskráning

Nýskráning