Halló Fíasól!

Út er komin bráðskemmtileg ný bók um flækjuhausinn Fíusól.

Það er ekki að spyrja að Fíusól, hún lendir í einhverju fjörugu á hverjum degi.  Í nýjustu bókinni, Fíasól og litla ljónaránið, segir af ótrúlegri atburðarrás – og litlum apaskottum, búlgörskum farandsöngvurum, úrræðagóðri mömmu og velheppnaðri ferð í skemmtigarð og skriðdýrahús.

Fíasól og litla ljónaránið er sjötta bókin um þetta fjöruga stelpuskott en hressilegar sögur Kristínar Helgu Gunnarsdóttur og bráðfyndnar myndir Halldórs Baldurssonar gera Fíusól að eftirlæti íslenskra bókaorma ár eftir ár.

Bókin hentar lesendum á frá fjögurra ára aldri og er skreytt fjölda skemmtilegra litmynda.


Við mælum með því að aðdáendur ólátabelgsins í Grasabæ sæki sér flotta skjámynd með Fíusól eða nokkrar flottar myndir til þess að lita.

Skjámyndina færðu hér.

Og hér finnur þú myndir til þess að lita.

Þess má svo geta að leikritið um Fíusól verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á laugardaginn.

INNskráning

Nýskráning