Hallgrímur Helgason fær skrautfjaðrir í hatt sinn hjá danska blaðinu Berlingske því bók hans, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp sem nýverið kom út þar í landi, sópar upp fimm stjörnum hjá gagnrýnanda blaðsins. Sá kallar Hallgrím „bókmenntagreina-bender“ mikinn og segir að leikur hans með glæpasagnaformið í fyrrgreindi bók fái krimmadrottninguna Yrsu Sigurðardóttur til að blikna í samanburði. Hér má lesa umfjöllun Berlingske.