Hálfbróðirinn á skjánum

Skáldsagan Hálfbróðirinn eftir Lars Saabye Christensen á sér fjölmarga aðdáendur og nú mun þeim að sönnu fjölga því RÚV hefur tekið til sýninga þáttaröð byggða á bókinni. Bókin rekur dramatíska fjölskyldusögu Barnums sem segir frá sjálfum sér, hrokkinhærða stráknum sem stendur ekki út úr hnefa og dreymir tregafulla dagdrauma; frá Fred, boxaranum og næturmanninum sem kemur og fer eins og honum sýnist; frá móður þeirra og föður sínum, spjátrungnum úr norðri sem ók inn í líf þeirra handarlaus á gulum Buick; frá ömmu sinni með Malaga-ilminn og langömmunni sem lifði sitt blómaskeið sem leikkona í þöglu myndunum; og síðast en ekki síst frá bréfinu dýrmæta, bréfinu sem langafinn skrifaði frá Grænlandi áður en hann týndist.

Bókin hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs á sínum tíma og hefur ennfremur hlotið lof og prís víða um heim.

INNskráning

Nýskráning