Tilnefndir höfundar Hagþenkis

Hagþenkir tilnefnir

Þrjár glæsilegar Forlagsbækur voru meðal þeirra tíu bóka sem tilnefndar voru til bókmenntaverðlauna Hagþengis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna: Upp með fánann eftir Gunnar Þór Bjarnason, Eldað og bakað í ofninum heima eftir Ingu Elsu Bergþórsdóttur og Gísla Egil Hrafnsson, og Appelsínur frá Abkasíu eftir Jón Ólafsson.

Tilkynnt verður um sjálf verðlaunin um miðjan febrúar. Í umsögn viðurkenningarráðsins um Forlagsbækur segir meðal annars: Upp með fánann. Baráttan um uppkastið 1908 og sjálfstæðisbarátta Íslendinga (Mál og menning). Aðgengileg umfjöllun um pólitískt umrót ársins 1908 og ólík sjónarmið um tengsl Íslands og Danmerkur.
Eldað og bakað í ofninum heima. Góður matur – gott líf (Vaka-Helgafell). Einstaklega falleg og vel unnin bók um mat og matargerð, leiðarvísir að betra lífi.
Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu (JPV útgáfa). Áhrifamikil og gagnrýnin greining á kommúnismanum og Gúlagi Sovétríkjanna sem afhjúpar varnarleysi hins almenna borgara.

Aðrar tilnefndar bækur voru: Innra augað. Sálfræði hugar, heila og skynjunar eftir Árna Kristjánsson (Háskólaútgáfan), Andlitsmeðferð og efnafræði snyrtivara eftir Ástu Bergljótu Stefánsdóttur og Guðrúnu Pétursdóttur (Iðnú bókaútgáfa), Stuð vors lands. Saga dægurtónlistar á Íslandi eftir dr. Gunna (Sögur útgáfa), Pater Jón Sveinsson. Nonni eftir Gunnar F. Guðmundsson (Bókaútgáfan Opna), Víkingaöld. Árin 800-1050 eftir Sigrúnu Helgadóttur, Freydísi Kristjánsdóttur og Guðmund Ó. Ingvarsson (Námsgagnastofnun), Kolefnishringrásin eftir Sigurð Reyni Gíslason (Hið íslenska bókmenntafélag) og Sagan af klaustrinu á Skriðu eftir Steinunni Kristjánsdóttur (Sögufélag).

INNskráning

Nýskráning