Hádegisfundur: Dómur sögunnar

Þriðjudaginn 7. desember gengst Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála í Háskóla Íslands fyrir áhugaverðum hádegisfundi undir yfirskriftinni Gunnar Thoroddsen. Hver verður dómur sögunnar? Fer fundurinn fram í stofu 101 í Odda og hefst kl. 12. Þar verður rætt bók Guðna Th. Jóhannessonar, Gunnar Thoroddsen – Ævisaga sem nýlega var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Einkum verður sjónum beint að endurkomu Gunnars Thoroddsen í stjórnmálin eftir 1970, stjórnarmyndunina 1980 og ár hans í stól forsætisráðherra, en óhætt er að segja að þau hafi verið stormasöm.

Sérstakir gestir eru Friðrik Sophusson, f.v. ráðherra og fv. varaformaður Sjálfstæðisflokksins, og Svavar Gestsson, fv. ráðherra og fv. formaður Alþýðubandalagsins.  Þeir voru samtíða Gunnari Thoroddsen á Alþingi.  Friðrik tók við af Gunnari sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins 1981. Svavar átti sæti í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen 1980-1983. Þeir munu eiga samtal við Guðna og aðra gesti fundarins um efnið.

INNskráning

Nýskráning