Gunnlaðarsaga endurútgefin

Svava Jakobsdóttir (1930?2004) var einn helsti rithöfundur Íslendinga á tuttugustu öld. Hún sendi aðeins frá sér tvær skáldsögur sem báðar vöktu mikla athygli, Leigjandann 1969 og Gunnlaðar sögu 1987, en samdi einnig fjölda smásagna og leikrita og hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir verk sín. Báðar skáldsögurnar voru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og gefnar út á erlendum málum.

Gunnlaðarsaga kemur nú út í fjórða sinn. Sagan er listavel skrifuð og lesandinn ferðast um fortíð og nútíð, veröld kvenna og karla. Ferðlagið fær síðan óvæntan en eftirminnilegan endi …

INNskráning

Nýskráning