Gunnar Thoroddsen og „dómur sögunnar“

Fjölmenni var á fundi um Gunnar Thoroddsen og „dóm sögunnar“ sem Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála stóð fyrir í Háskóla Íslands á þriðjudaginn var, í tilefni af nýrri ævisögu Gunnars eftir Guðna Th. Jóhannesson. Að lokinni framsögu Guðna fjölluðu tveir stjórnmálamenn um bókina og kynni sín af Gunnari Thoroddsen. Friðrik Sophusson, sem varð varaformaður Sjálfstæðisflokksins á eftir Gunnari árið 1981, kvaðst minnast hans með hlýhug og lagði m.a. áherslu á að Gunnar hefði aldrei ætlað sér að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn til frambúðar þótt hann myndaði ríkisstjórn í trássi við vilja forystusveitarinnar. „Það var algerlega ljóst að Gunnar Thoroddsen ætlaði að skila Sjálfstæðisflokknum heilum í höfn,“ sagði Friðrik um samtöl þeirra Gunnars síðsumars 1982. Friðrik Sophusson fór fögrum orðum um bók Guðna og sagði að ævisaga Gunnars Thoroddsens „gæti verið leikrit eftir Shakespeare“, svo spennandi og magnþrungin væri hún. En vissulega væri sagan sögð af sjónarhóli Gunnars Thoroddsens.

Svavar Gestsson var formaður Alþýðubandalagsins og félags-, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í ríkisstjórn Gunnars. Þá tókst með þeim góður vinskapur en Friðrik Sophusson minnti Svavar þó góðlátlega á að í ævisögunni væri minnst á skammir um Gunnar Thoroddsen sem Svavar hefði birt í forystugrein þegar hann var ritstjóri Þjóðviljans. „Uss, ég skrifaði a.m.k. tíu leiðara með miklu meiri skömmum um Gunnar!“ svaraði Svavar þá. Þótt Svavar segði ævisögu Gunnars Thoroddsens mikið afrek og tímamótaverk kvaðst hann sakna umræðu í bókinni um þær þjóðfélagsbreytingar sem áttu sér stað á þeirri hálfu öld sem Gunnar var í fararbroddi í íslenskum stjórnmálum. Þar að auki hefði mátt geta í lengra máli þeirra verka sem unnið var þegar Gunnar var ráðherra og forsætisráðherra. „Hann var ekki bara að fljúgast á í Sjálfstæðisflokknum – eða hvað?“

Margt fleira bar á góma í viðræðum þeirra félaga, Friðriks og Svavars, og var gerður góður rómur að máli þeirra. Síðan báru fundargestir upp spurningar og spunnust þá skemmtilegar samræður. Meðal annars minntist Sturla Böðvarsson, fyrrverandi alþingismaður og forseti Alþingis, á hin miklu átök Gunnars Thoroddsens og Geirs Hallgrímssonar, sem er lýst í löngu máli í bókinni, og sagði meðal annars að þótt Geir hefði verið mikill sómamaður hefði verið einn ljóður á ráði hans sem stjórnmálamanns: „Honum tókst ekki að nálgast þetta verkefni, að vera formaður Sjálfstæðisflokksins.“

Ljóst má vera að ævisaga Gunnars Thoroddsens mun vekja miklar umræður um sögu Sjálfstæðisflokksins og helstu leikendur í bráð og lengd.

INNskráning

Nýskráning