Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir

Guðrún Ósvífursdóttir og hrunið!

Fjallað eru um nýjustu bók Þórunnar Erlu- og Valdimarsdóttur, Mörg eru ljónsins eyru, í bókaspjalli Sunnlenska bókakaffisins. Segir þar meðal annars:

„Mér létti eiginlega að Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir rithöfundur er ekki orðin að reyfarahöfundi. Því þó að blóð renni ómælt í nýjustu sögu hennar, Mörg eru ljónsins eyru, þá er sagan langt því frá að vera hefðbundinn krimmi. Hún er eitthvað miklu meira.

Hér lifnar Laxdæla fyrir okkur sem legið höfum í henni eitthvert skeið. En um leið er sagan skemmtileg og vel gerð lýsing á nútíma Íslendingum, eiginlega hrunbókmennt, svo mjög sem hún fylgir sögupersónunum eftir inn í síðustu ár vitleysunnar.“

Umfjöllunina má lesa í heild á bloggsíðu Sunnlenska bókakaffisins.

INNskráning

Nýskráning