Guðrún Eva Mínervudóttir

Guðrún Eva og Skaparinn

Indverska forlagið Megha Books hefur keypt útgáfuréttinn að Skaparanum eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Bókin verður gefin út á Malayalam-tungumálinu, sem einkum er talað í Kerala. Eftir því sem næst verður komist er þetta fyrsta íslenska bókin sem kemur út á því tungumáli. Það er nú aldeilis það!

Annars er nýjasta verkefni Guðrúnar Evu þýðing hennar á Eftirköstunum eftir Rhidian Brook, magnaðri eftirstríðssögu sem gagnrýnendur út um allan heim keppast um að lofa eins og sjá mér hér að neðan:

„Snilldarleg skáldsaga … stórbrotin.“
The Times

„Dásamlega skrifuð. Snertir mann djúpt.“
Independent

„Kemur á óvart hvað eftir annað.“
Guardian


INNskráning

Nýskráning