Hallgrímur Helgason og Guðmundur Andri Thorsson

Guðmundur Andri og Hallgrímur tilnefndir

Guðmundur Andri Thorsson og Hallgrímur Helgason eru tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2013 fyrir Íslands hönd. Guðmundur Andri hlýtur tilnefningu fyrir Valeyrarvalsinn og Hallgrímur fyrir Konan við 1000°.

Aðrir sem hlutu tilnefningu eru dönsku höfundarnir Josefine Klougart fyrir Én af os sover, og Kim Leine fyrir Profeterne i Evighedsfjorden. Fyrir Finnlands hönd voru tilnefndar Rosa Liksom fyrir Hytti nro 6 og Ulla-Lena Lundberg, fyrir Is, en sama bók er tilnefnd af hálfu Álands. Norsku höfundarnir sem eru tilnefndir eru Nils-Øivind Haagensen fyrir God morgen og god natt og Ole Robert Sunde fyrir Krigen var min families historie. Lars Norén, sem skrifaði Filosofins natt og Johannes Anyuru með En storm kom från paradiset eru tilnefndir fyrir hönd Svíþjóðar.

Færeyingurinn Jóanes Nielsen er tilnefndur fyrir Brahmadellarnir, hin grænlenska Mariane Petersen fyrir Piniartorsuit kinguaavi og Sollaug Sárgon fær tilnefningu höfunda sem rita á samamáli fyrir Savvon bálgáid louttastit.

Forlagið óskar Hallgrími og Guðmundi Andra innilega til hamingju með tilnefninguna.

INNskráning

Nýskráning