Bókmenntarýnir Jyllandsposten, Henriette Bacher Lind, skrifaði lofsamlega gagnrýni um bók Guðmundar Andra, Valeyrarvalsinn á menningarsíðum blaðsins um helgina.
Bókin hlaut heilar fimm stjörnur og umsögnina, með hennar eigin orðum; „… for pokker, hvor kan han skrive,“ sem á ástkæra ylhýra myndi útleggjast eitthvað á þessa leið: „…mikið andskoti getur hann skrifað!“
Valeyrarvalsinn er hrífandi og margradda skáldverk þar sem sextán sögur fléttast saman, kallast á, botna hver aðra og skarast margvíslega enda gerast þær allar á sömu tveimur mínútunum í litlu þorpi. Þetta eru sögur um mannfólkið og það sem kemur fyrir það, sögur um ástir og afglöp og fjölskyldutengsl og öll leyndarmálin, alkunn og djúpt grafin. Persónur, atvik og kenndir kvikna til lífs og tónlistin umvefur allt í ómótstæðilegum texta Guðmundar Andra Thorssonar.
*****
Jyllandsposten/Henriette Bacher Lind
*****
Ekstrabladet/George Hilton
****
B.T
Valeyrarvalsinn var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir árið 2012.
Bókin kom út í danskri þýðingu Erik Skyum Nielsen hjá forlaginu Bazer & co. og er hún væntanleg á þýsku innan tíðar og svo á norsku og frönsku árið 2015.