Guðbergur Bergsson

Guðbergur Bergsson heiðursdoktor og Guðbergsstofa opnuð

Á laugardaginn var Guðbergur Bergsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Deild erlendra tungumála í Háskóla Íslands. Af því tilefni var haldið málþing um verk Guðbergs í Hátíðarsal Háskólans og tók fjöldi íslenskra og erlendra fræðimanna, þýðenda og rithöfunda þátt í þinginu.

Yfirskrift þingsins „Að heiman og heim“ lýsir að einhverju leyti stöðu Guðbergs sem íslensks skálds – og þýðanda. En hann hefur „sí og æ verið að bregða sér af bæ að heiman, suður í lönd eða eitthvað út í buskann og koma svo aftur hingað heim til að anda að sér gamalkunnu Grindavíkurloftinu og þá einatt með eilítið aðra sól og sýn á lífið en við höfum átt að venjast í víkum, til fjalla og á nesjum hér heima í íslenskri náttúru“ eins og Vigdís Finnbogadóttir komst að orði í tilefni málþingsins.

Fyrirlesarar beindu sjónum sínum að verkum skáldsins í alþjóðlegu samhengi, þýðingum á verkum hans, fagurfræði og samtali skáldskapar hans við verk yngri skálda. Undir lok málþingsins voru pallborðsumræður þar sem nokkrir íslenskir rithöfundar fjölluðu um tengsl sín við verk Guðbergs.

Þingið var vel sótt og voru gestir og aðstandendur þess ánægðir, margs vísari og jafnvel innblásnir að því loknu.

Að þinginu stóðu: Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, Íslenskudeild Manitobaháskóla, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO, Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands, Hugvísindastofnun Háskóla Íslands, Forlagið og Grindavíkurbær.

Guðbergsstofa í Grindavík

Í gær, sunnudag var svo opnuð Guðbergsstofa í Grindavík við hátíðlega athöfn, en Guðbergur er heiðursborgari bæjarins. Guðbergsstofa er sýning og safn um líf og feril skáldsins og þar má sjá öll verk sem gefin hafa verið út eftir Guðberg á Íslandi, erlendar þýðingar á bókum hans, sýnishorn af óútgefnum verkum, verðlaunagripi og viðurkenningar, muni úr eigu skáldsins og fjölda ljósmynda.

Guðbergsstofa er staðsett í Kvikunni, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur.

INNskráning

Nýskráning