Spennandi sumar

Gríptu krimma í fríið

Glæpasaga, krimmi, sálfræðitryllir … ef þú leitar að góðri spennusögu þá þarftu ekki að leita lengi. Síðstu vikurnar hafa hrúgast inn gæðakiljur sem halda svo sannarlega lesandanum við efnið.

Ný bók frá Lee Child um hörkutólið Jack Reacher, Fórnardauði, er komin út. Þetta er fjórða bókin sem kemur út á íslensku í þessari seríu og hefur lesendahópurinn vaxið og dafnað með hverri bók.

Hin sænska Åsa Larsson skrifar sálfræðilegar glæpasögur og í nýjustu bók sinni, Dauðadjúp, gefur hún ekkert eftir.

Höfundaparið Kaaberböl og Friis eru líka á mannlegu nótunum í Dauða næturgalans með margslungnum söguþræði og sögulegum tilvísunum.

Ef fólk kýs heldur að fá hroll niður eftir bakinu er Lærlingurinn eftir Tess Gerritsen rétta bókin. Jussi Adler-Olsen fær líka hárin til að rísa í hrikalega spennandi bók, Veiðimönnunum, sem situr eftir í lesandanum í langan tíma á eftir.

Gleðilegt spennusumar – megi taugarnar þenjast til hins ítrasta.

INNskráning

Nýskráning