Margir hafa þegar uppgötvað lagersölu Forlagsins að Fiskislóð 39 og nýverið bættust ‘ánægðir bókaormar’ í þann hóp. Þeir segja farir sínar sléttar í Velvakanda Morgunblaðsins:
„Okkur langar til að vekja athygli á ágætri bókabúð Forlagsins sem er á Grandanum. Þetta er stór bókabúð, hátt til lofts og vítt til veggja. Vissum ekki af þessarri búð fyrr en nýlega, en hún er mikil og góð viðbót fyrir alla borgarbúa. Bókum er sérlega vel fyrir komið og auðvelt að leita, því víða er þeim komið fyrir á brettum, eftir efni. Þarna er afar snyrtilegt og þjónustan í alla staði fagleg og þægileg. Nú vantar bara kaffistofu þarna til að fá fínt bókakaffi í Vesturbæinn, kíkja í bækurnar og fá sér kaffi og með því og ekki er verra að næg bílastæði eru þarna. Grandinn er sífellt að bæta sig, orðinn skemmtilegur heim að sækja í samspili við náttúrufegurð sjávar og fjalla.“