[fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_2″ last=“no“ spacing=“yes“ center_content=“no“ hide_on_mobile=“no“ background_color=““ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ background_position=“left top“ hover_type=“none“ link=““ border_position=“all“ border_size=“0px“ border_color=““ border_style=““ padding=““ margin_top=““ margin_bottom=““ animation_type=““ animation_direction=““ animation_speed=“0.1″ animation_offset=““ class=““ id=““][fusion_imageframe lightbox=“no“ gallery_id=““ lightbox_image=““ style_type=“none“ hover_type=“none“ bordercolor=““ bordersize=“0px“ borderradius=“0″ stylecolor=““ align=“none“ link=““ linktarget=“_self“ animation_type=“0″ animation_direction=“down“ animation_speed=“0.1″ animation_offset=““ hide_on_mobile=“no“ class=““ id=““]
[/fusion_imageframe][/fusion_builder_column][fusion_builder_column type=“1_2″ last=“yes“ spacing=“yes“ center_content=“no“ hide_on_mobile=“no“ background_color=““ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ background_position=“left top“ hover_type=“none“ link=““ border_position=“all“ border_size=“0px“ border_color=““ border_style=““ padding=““ margin_top=““ margin_bottom=““ animation_type=““ animation_direction=““ animation_speed=“0.1″ animation_offset=““ class=““ id=““][fusion_text]Uppskrift að girnilegum hafragraut úr bók Nönnu Rögnvaldardóttur, Létt og litríkt.
Það þarf ekkert endilega að sjóða morgungrautinn, maður getur sett hafragrjón og vökva í krukku eða skál að kvöldi og það er tilbúið til neyslu að morgni. Óhætt er að láta hugmyndaflugið leika sér en hér eru fjórar tillögur. Í hverri uppskrift eru 125 ml af grófvölsuðum höfrum, sem mér þykja henta betur en fínvölsuð grjón, en vökvinn er mismunandi. Allar uppskriftirnar eru án viðbætts sykurs.
Hver skammtur er hugsaður fyrir einn.
1. Með berjum og möndlum
125 ml grófvölsuð hafragrjón
125 ml mjólk
1 msk möndlusmjör
2–3 msk blönduð ber (frosin)
2. Með sultu
125 ml grófvölsuð hafragrjón
150 ml hrein jógúrt
1 msk sykurlaus sulta
3. Með hnetum og ávöxtum
125 ml grófvölsuð hafragrjón
125 ml ávaxtaþykkni
(t.d. bananasmoothie)
1 msk salthnetur
4. Með vanillu og banana
125 ml grófvölsuð hafragrjón
150 ml kókosmjólk
½ banani, stappaður
½ tsk vanilluessens
Verði ykkur að góðu![/fusion_text][/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]