Forlagið óskar eftir að ráða fjölhæfan grafískan hönnuð og umbrotsmann til starfa sem fyrst.
Fjölbreytt verkefni á lifandi og skemmtilegum vinnustað. Viðkomandi þarf að hafa góða kunnáttu í helstu Adobe-forritum, s.s. InDesign, Photoshop og Flash. Þekking á After Effects eða sambærilegu forriti væri einnig kostur.
Helstu verkefni eru blaða- og netauglýsingar, umbrot bóka og kápuhönnun, þ.e. hvers konar viðfangsefni sem lúta að útgáfu bóka og gerð markaðsefnis.
Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið atvinna@forlagid.is eða á Hönnun, Forlagið, Bræðraborgarstíg 7, 101 Reykjavík fyrir 21. desember nk.
Upplýsingar um menntun, reynslu og fyrri störf nauðsynlegar ásamt sýnishornum af fyrri verkum.