Antti Tuomainen

Græðarinn heillar Breta

Finnska glæpasagan Græðarinn eftir Antti Tuomainen var að koma út í Bretlandi og þar eru umsagnir gagnrýnenda á eina lund eins og hér á landi: „Þessi hráslagalega skáldsaga grípur mann föstum tökum … Smart, þrungin og dásamlega hugmyndarík,“ sagði gagnrýnandi Sunday Mirror. „Stíllinn er knappur, söguþráðurinn fullur af óvæntum snúningi og skyndilegu ofbeldi, þetta er ekkert minna en upphaf nýrrar bókmenntagreinar, hinnar bölsýnu leynilögreglusögu,“ segir The Sunday Telegraph. „Stuttorður stíllinn hæfir vel dimmu, svikulu, regnþrungnu umhverfinu í þessari myrku sýn á Helsinki … Og svo er snyrtilega óvænt vending alveg í blálokin,“ segir Glasgow Sunday Herald. Og loks segir sjálft Financial Times: „Meitlaður stíll Tuomainens hæfir vel drungalegu viðfangsefninu og felur í sér háalvarlega spurningu: hvar og hvernig finnum við von þegar lög og regla bregðast?“

Ef íslenskir aðdáendur hafa áhuga á að fylgjast betur með Antti þá er hann kominn með nýja heimasíðu og Facebook-síðu:
http://anttituomainen.com/

INNskráning

Nýskráning