Antti Tuomainen

Græðarinn fær fjórar stjörnur

Steinþór Guðbjartsson er ónískur við nýju finnsku spennubókina Græðarann í Morgunblaðinu í dag, hann gefur henni fjórar stjörnur og finnst hún bæði spennandi og athyglisverður reyfari: „Það hlaut að koma að því að spennubók yrði skrifuð út frá hugsanlegum afleiðingum loftslagsbreytinga,” segir hann „Græðarinn gerist í Helsinki og ýtir ekki beint undir bjartsýni í sambandi við framtíðina.” Heimurinn er á heljarþröm, einkum er suðrið illa farið en norðrið er draumastaðurinn og Norður-Kanada er sem himnaríki á jörðu. „Í öllum þessum hörmungum ríkir stjórnleysi. Menn myrða vinstri, hægri og Græðarinn segist vera málsvari veraldar á leið til tortímingar, myrðir þá sem að hans mati hafa flýtt fyrir loftslagsbreytingunum. Yfirvöld hafa hvorki tíma né mannskap til að eltast við morðingja og hvað þá að leita að týndri blaðakonu. Þá kemur til kasta elskhugans og um það fjallar sagan, leit eiginmannsins að eiginkonunni.”

Þetta er ekki falleg saga, segir Steinþór. „Vonleysið er algjört og nær alls staðar komið að lokuðum dyrum. Ofbeldið er gegndarlaust en þrátt fyrir miskunnarleysið örlar enn á manngæsku. Þrátt fyrir allt er von. … Framtíðarsýnin er svört en þar sem er kærleikur þar er ást og hún getur gert kraftaverk.”

INNskráning

Nýskráning