Nanna Rögnvaldardóttir

Gourmand-verðlaunin: Nanna tilnefnd þriðja árið í röð

Nýlega var tilkynnt um tilnefningar til Gourmand World Cookbook Awards. Tvær bækur frá Forlaginu hlutu náð dómnefndarinnar; Jólamatur Nönnu er tilnefnd í flokknum „Auðveldar uppskriftir“ og Góður matur – gott líf í takt við árstíðir er tilnefnd í flokknum „Besta hönnunin“ en sú bók var á dögunum einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Þetta er í þriðja árið í röð sem Nanna er tilnefnd til verðlaunanna. Árið 2009 var Nanna tilnefnd fyrir tvær bækur í þremur flokkum, það voru bækurnar Maturinn hennar Nönnu og Smáréttir Nönnu, og í fyrra var bókin Smáréttir Nönnu aftur tilnefnd.

Verðlaunin verða afhent í París á vordögum í tengslum við opnun á stærstu matreiðslubókasýningu sem haldin er í heiminum.

Gourmand World Cookbook Awards eru meðal þeirra virtustu á sviði matar- og vínbóka og hefur verið líkt við ólympíuleika kokkabókanna. Tilgangur þeirra er meðal annars að hjálpa lesendum að velja milli þeirra tugþúsunda titla sem koma út árlega um mat og vín og auka þekkingu og virðingu fyrir matar- og vínmenningu.

INNskráning

Nýskráning