Í tilefni af umbrotunum á Suðurlandinu bjóðum við sérstakt tilboð á hinu glæsilega riti Íslenskar eldstöðvar. Tilboðið gildir á Forlagsvefnum og í verslun okkar á Fiskislóð 39, til og með föstudeginum 30. apríl. Íslenskar eldstöðvar er vandað fræðirit handa almenningi um eldvirkni á Íslandi í aldanna rás eftir Ara Trausta Guðmundsson. Hér er fjallað um þau óblíðu öfl í iðrum jarðar sem mótað hafa ásjónu Íslands á umliðnum árþúsundum og haft mikil áhrif á lífið í landinu.