Jón Gnarr

Gnarr í efsta sæti

Hinn knái vörustjóri íslenskra bóka í Eymundsson, Bryndís Loftsdóttir, lætur stundum nokkur orð fylgja metsölulistanum sem hún sendir út vikulega. Í dag þarf hún að gefa nokkra skýringu á efsta sæti listans og segir: „Enn og aftur sannast það að Kolbrún Bergþórsdóttir er áhrifamesta fjölmiðlamanneskja þessa lands þegar kemur að íslenskum bókum. Þegar hún hrífst af skáldverkum og deilir upplifun sinni með þjóðinni í Kiljunni þá skal aldrei standa á því að viðkomandi bók rýkur út af meiri krafti en nokkur auglýsingaherferð gæti áorkað. Og skiptir þá engu þótt mánuðir séu frá útkomu viðkomandi bókar eins og dæmi vikunnar sannar. Í Kiljunni sl. miðvikudag ræddu Kolbrún, Sigurður og Egill um Sjóræningjann, 2. bindi skáldaðrar sjálfsævisögu Jóns Gnarrs sem kom út fyrir jól en vakti litla athygli og seldist hægt. Kolbrún jós bókina lofi af mikilli einlægni og ástríðu eins og henni einni er lagið. Lesendur bókstaflega streymdu í bókaverslanir í kjölfarið, enda bókin komin á útsölu og nú fáanleg á kiljuverði. Sjóræningi borgarstjóra Reykjavíkur, Jóns Gnarr, klifraði því af miklu öryggi upp í fyrsta sæti Eymundson metsölulistans þessa vikuna – lang söluhæsta bókin.“

Efst á kiljulista vikunnar trónir Græðarinn, fíni finnski krimminn hans Antti Tuomainen, og efst á barnabókalista er ævintýrið góðkunna um Lilla klifurmús og hin dýrin í Hálsaskógi.

INNskráning

Nýskráning