Dagbók frá veröld sem var

Gluggað í dagbók frá veröld sem var

Ljósmyndasýning með Íslandsmyndum Emils Edgren verður opnuð í Þjóðminjasafninu nk. föstudag í tilefni af útkomu bókarinnar Dagbók frá veröld sem var.  Á árum heimsstyrjaldarinnar síðari var hinn sænski Emil Edgren ljósmyndari hjá Ljósmyndaþjónustu bandaríska hersins í Evrópu og dvaldi þá meðal annars á Íslandi.  Edgren var þá tvítugur að aldri en myndefni hans var fólk, híbýli, götur og landslag. Annars staðar í Evrópu geisaði styrjöldin með eyðileggingarmætti sínum en myndirnar frá Íslandi mynda sterka andstæðu við myndir þaðan. Hér var fólk önnum kafið við hversdagsleg störf, búskap, þvotta, vöruflutninga, og sérstaka athygli vekja hrífandi myndir af börnum við leik og störf. Margar myndanna tók Edgren í Hafnarfirði og nágrenni, í braggahverfunum og í miðbæ Reykjavíkur en þær segja sögu frá horfnum heimi – og hjálpa okkur að rifja upp liðna tíð en líka að sjá það sem aldrei breytist.

Edgren skapaði sér nafn sem virtur ljósmyndari og hann fékk þó nokkrar viðurkenningar fyrir störf sín, meðal annars fyrstu verðlaun á alþjóðlegu ljósmyndasýningunni í San Francisco árið 1952, í fyrsta skipti sem hún var haldin. Ljósmyndir hans af vígvöllunum voru birtar í vinsælum blöðum og tímaritnum, meðal annars í tímaritinu Life.

Emil Edgren er nú á tíræðisaldri og býr með konu sinni Lucille í Capitola í Kaliforníu. Hann er enn óþreytandi ljósmyndari og sést iðulega á gangi nærri heimili sínu mundandi myndavélina. Nú til dags notar hann stafræna myndavél en gamla Speed Graphic-vélin er enn nothæf.

Sýningin stendur til 23. nóvember.

INNskráning

Nýskráning