Bóndadagurinn er á föstudaginn og margir vilja gleðja bóndann á heimilinu með fallegri gjöf.
Það er léttur leikur að finna rétta bók fyrir hvert tilefni. Eina sem þú þarft að spyrja þig er hvað bóndi þinn vill fá og hvaða skilaboð þú vilt senda honum.
Viltu gefa rómantíska og ljúfa bók?
Í bókinni Gæfuspor og gildin í lífinu er leitast við að draga fram kosti og galla mannsins, tilfinningar hans, fagra hugsun og skyn á tímann. Önnur bók sem bætir og eflir ástarsambandið er Hjónaband og sambúð, eftir séra Þórhall Heimisson. Bókin er byggð á vinsælum hjónanámskeiðum sem Þórhallur hefur haldið í fjöldamörg ár.
Viltu gefa spennandi bók?
Þrjár nýjar kiljur Eitt skot, Græðarinn og Boðskapur Lúsífers, fyrir þá sem hafa gaman af góðum spennusögum.
Viltu gefa kitlandi bók?
Kynlífsbiblían er grundvallarrit um ástaratlot og leiðarvísir elskenda að frábæru kynlífi. Gjöf sem klikkar ekki og á heima á náttborðinu hjá öllum pörum. Í Litla Lostaboxinu er að finna tvær bækur; Handhægt súperflört og Handhægt súpersex frá drottningu dirfskunnar, Tracey Cox.
Viltu gefa tómstundabók? Hvort sem áhugamál bóndans snýst um veiðar, matreiðslu eða útivist þá geturðu fundið réttu bókina handa honum. Í Skotvopnabókinni er að finna flest það sem íslenskum skotveiðimönnum ber að kunna skil á. Ef áhuginn liggur frekar í útivistinni er Ferðaatlas algjör skyldueign. Ef bóndi þinn vill frekar vera innandyra er tilvalið að gefa honum gæðamatreiðslubókina Eldað og bakað í ofninum heima frá höfundum bókarinnar Góður matur – gott líf í takt við árstíðir þar sem er að finna leiðbeiningar og uppskriftir að einföldum réttum í ofni.
Fyrir utan þessar tilteknu bækur eru ótal aðrar á Netmarkaði Forlagsins: skáldsögur, handbækur og fræðibækur á frábærum tilboðum. Endilega kíktu á úrvalið og sjáðu hvort þú finnir ekki eitthvað sem passar akkúrat fyrir þinn bónda.