Það er orðið jólalegt um að litast í Húsi skáldsins á Gljúfrasteini: Búið að dekka borð í borðstofunni og draga fram jólakortin. Á sunnudaginn kemur, 9. desember, koma þangað góðir gestir og lesa upp úr bókum sínum. Þeirra á meðal er Auður Jónsdóttir sem er að hluta til alin upp á þeim stað enda er Gljúfrasteinn meðal sögustaða í rómaðri bók hennar, Ósjálfrátt. Eiríkur Örn Norðdahl og Þórarinn Eldjárn lesa líka úr sínum nýju bókum, Illsku og Hér liggur skáld, sem hafa fengið skínandi góðar viðtökur gagnrýnenda og annarra lesenda. Upplesturinn hefst stundvíslega klukkan 16 og aðgangur er ókeypis