Glæsilegur dómur um Glæsi

Skáldsagan Glæsir eftir Ármann Jakobsson fékk fimm stjörnur hjá Páli Baldvini í Fréttatímanum í dag. Páll Baldvin er hrifinn af frumlegu sögusviðinu; en sögumaður í bókinni er draugur, naut eða fornynja sem situr fast í fjósinu. Páll Baldvin segir Ármann vera „búinn að ryðja sér fremsta stæði á básnum í fjósi íslenskrar ritmenningar – lærður en um leið fyndinn, snjall og skemmtilegur.“

INNskráning

Nýskráning