Í nýjasta hefti Ritsins, tímarits Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, er fjallað um tvær nýlegar bækur, Himininn yfir Þingvöllum eftir Steinar Braga og Skaparann eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Þetta eru einstaklega athyglisverðar greinar sem ástæða er til að benda áhugasömum bókmenntalesendum á.
Það er Björn Þór Vilhjálmsson sem gerir langa og ítarlega úttekt á þrem nóvellum Steinars Braga undir heitinu „Skrif við núllpunkt – um steingervinga, sæborgir og endalok“ og opnar lesanda nýstárlega sýn ofan í ómælisdjúp sagnanna. Þær fjalla allar um dauðann og Björn Þór spyr hvort dauðahvötin sem rekur þær áfram sé „táknræn hliðstæða þeirrar stjórnlausu neyslu sem stefnir í að tæma auðlindir jarðar? Ef til vill má lesa umgengni okkar við umhverfið í samtímanum sem birtingarmynd dauðahvatarinnar, og ómeðvitaða þrá eftir endalokum.“
Sigrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar um bók Guðrúnar Evu og dregur fram athyglisverðan skyldleika milli kynlífsdúkkunnar og skáldsögunnar í greininni „Hvít eins og frauðplast“: „Í sögunni eru dregnar upp þversagnirnar sem listamaðurinn / dúkkusmiðurinn neyðist til að búa við; annars vegar leitast hann við að skapa verk sem skiptir máli, hins vegar þarf hann að selja það. En þversagnirnar sýna lesendum ekki síður fram á að jafnvel markaðsvaran getur hróflað við ímyndunarafli þess sem tekur við henni. Og nýtt sköpunarverk verður til.“