Kvikmyndafyrirtækið Tenderlee MPC hefur tryggt sér kvikmyndarétt skáldsögunnar Glæpurinn – Ástarsaga eftir Árna Þórarinsson, sem naut mikilla vinsælda fyrir jólin og fékk framúrskarandi dóma.
Tenderlee á að baki vinsælar kvikmyndir á boð við Rokland og XL en Árni er líklega best þekktur fyrir bækur sínar um rannsóknablaðamanninn Einar. Árni þykir þó hafa róið á ný mið með Glæpnum og gaman verður að sjá kvikmyndaútfærslu á þessari mögnuðu og átakanlegu sögu. Marteinn Þórsson skrifar handrit myndarinnar auk þess að leikstýra en ráðgert er að hún verði tekin upp 2015.
Þeir Árni og Marteinn auk Jóhanns Páls Valdimarssonar, útgefenda Glæpsins, hafa undirritað samning um sölu kvikmyndaréttarins á skrifstofu Forlagsins en mikil tilhlökkun er í herbúðum allra aðila.
Sagan gerist í einn örlagaríkan vordag í Reykjavík, á 18 ára afmælisdegi Fríðu. Þennan sama dag höfðu foreldrar hennar lofað að upplýsa hana um leyndarmálið sem sundraði fjölskyldunni. Fortíðin birtist okkur smám saman í afturlitum og hrikalegur sannleikurinn kemur í ljós. Mun fjölskyldan sameinast þegar degi tekur að halla eða hafa örlögin þegar spunnið þeim vef?