Árni Þórarinsson

Glæpurinn hlýtur einróma lof!

Gagnrýnendur eru á einu máli um ágæti nýrrar bókar Árna Þórarinssonar, Glæpurinn – Ástarsaga, og keppast við ausa yfir hana lofi. Bókin trónir ofarlega á topplistum bóksala og allt bendir til að þessi nýji tónn sem Árna slær með verkinu renni ljúflega í landann. Glæpurinn er grípandi, áleitin og áhrifamikil nútímasaga en sem lætur engan ósnortinn. Ýmsir gagnrýnendur hafa bent á að ekki megi gefa of mikið upp um söguþráðinn til þess spilla ekki sögunni fyrir lesendum svo við mælum með að þú skellir þér á eintak sem allra fyrst!

Hér eru brot úr dómum um Glæpinn:

****
„Árni vekur forvitni strax frá fyrstu síðu og sogar lesandann inn í grimma örlagasöguna sem ómögulegt er annað að lesa í einum rykk. Glæpurinn er virkilega haganlega samansett og flott saga …“
Þórarinn Þórarinsson / Fréttatíminn

****
„Sagan er nefnilega þrælspennandi og erfitt að leggja hana frá sér fyrr en að lestri loknum … Það er eldgömul og útslitin klisja að lesandanum renni kalt vatn milli skinns og hörunds við lestur en það er nákvæmlega það sem hér gerist þegar lesandinn loks áttar sig á því um hvað málið snýst. 
Virkilega glæsilega gert.“

Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið

„Prýðileg og óvænt saga hjá Árna sem hlýtur að hreyfa við öllum lesendum.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan

„Spennandi alveg frá fyrstu síðu … þétt verk, virkilega vel heppnað.“
Sigurður G. Valgeirsson / Kiljan

„Ógleymanlegar persónur sem glíma við óbærileg örlög. Listavel skrifað.“
Árni Matthíasson

„Hér sýnir Árni nýja hlið þar sem frásagnarlistin fær að njóta sín. Saga sem heldur manni við efnið.“
Katrín Jakobsdóttir

INNskráning

Nýskráning