Glænýjar og glóðvolgar gjafabækur!

Gjafabókasería Forlagsins hefur verið sívinsæl undanfarin ár en nú hafa þrjár glænýjar og glóðvolgar bækur bæst í hópinn.

Íslensk úrvalsljóð, valin af Guðmundi Andra Thorssyni, inniheldur úrval gamalla íslenskra ljóða. Þetta eru ekki bestu ljóð sem ort hafa verið á íslensku – aðeins örlítið sýnishorn af þeim mikla ljóðaauði sem við eigum. Hér eru ljóð alveg frá elstu tíð og fram á 20. öld; þau ná úr grárri forneskju eddukvæðanna og til hinna síðustu ljóðskálda hér á landi sem ortu ljóð sín að mestu ósnortin af formbyltingu 20. aldarinnar.

Þegar vetrar þokan grá
Þorsteinn Erlingsson (1858-1914)

Þegar vetrar þokan grá
þig vill fjötra inni;
svífðu burt og sestu hjá
sumargleði þinni.

Þar var löngum lokið skjótt
lífsins öllum mæðum.
Manstu hvað þær flýðu fljótt
fyrir hennar kvæðum?

[…]

En ef létt er lundin þín,
loftið bjart og næði;
sestu þar sem sólin skín,
syngdu lítið kvæði.

Það er líkt og ylur í
ómi sumra braga;
mér hefur hlýnað mest á því
marga kalda daga.

Íslenskar úrvalsstökur, sömuleiðis valdar af Guðmundi Andra, er prýðisgott samansafn þessa merka séríslenska ljóðaarfs. Staka er vísa undir rímnahætti sem stendur stök. Hún getur fjallað um hvaðeina. Hún getur miðlað lífsspeki eða verið bull; sýnt okkur niðurstöðu heillar mannsævi eða verið smávægileg athugasemd; verið klám eða níð eða djúpseilin mannlýsing. Og hún getur verið allt þar á milli. Um aldir hefur stakan verið helsta bókmenntaform Íslendinga, svo yfirlætislaus og samgróin daglegu lífi að þeir hafa varla tekið eftir því sjálfir. Aðferð hennar við að meitla hugsun sína í nokkrar línur undir ströngu formi þar sem reynir á orðsnilld og hugkvæmni þróaðist hér í fásinninu svo að jafnvel má tala um þjóðaríþrótt.

Móðurjörð, hvar maður fæðist,
mun hún eigi flestum kær,
þar sem ljósið lífi glæðist
og lítil sköpun þroska nær?
Sigurður Breiðfjörð (1798-1846)

Íslenskir málshættir og snjallyrði, valdar af matmóðurinni Nönnu Rögnvaldardóttur, inniheldur mikið safn fleygra orða. Málsháttasöfn geyma lífsspeki og reynslu, ráðleggingar og viðvaranir og alls konar vísdóm og þótt orðalagið sé stundum fornlegt og miðað við horfna lífshætti og úrelt vinnubrögð er í flestum málsháttum sannleikskjarni, uppsöfnuð reynsla kynslóðanna sem átt getur við á öllum tímum – líka í nútímanum.

Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi.
Oft verður vondur verstur sjálfum sér.
Margt er manna bölið, misjafnt drukkið ölið.

Fyrir voru í gjafabókaseríunni bækurnar Íslensk orðsnilld, Íslensk kvæði, Ástarljóð Davíðs Stefánssonar og Gæfuspor – Gildin í lífinu sem vitanlega verða fáanlegar áfram.

Gefðu gæði og gríptu með þér eina þessarra við hvert tækifæri.

INNskráning

Nýskráning