Hjartabók

Gjöf sem gleður allt árið

Áskrift að einhverjum af bókaklúbbum Forlagsins er tilvalin gjöf fyrir bókaorminn – þennan sem er búinn að lesa allar nýju bækurnar og vill eiga lestrarfóður allt árið um kring.

Bókaklúbbar Forlagsins eru fjölbreyttir og ættu allir að finna klúbb við hæfi. Félagar í Uglunni fá sendar tvær vandaðar skáldsögur, innlendar og þýddar, til sín sex sinnum á ári. Félagar í Hrafninum fá spennusögur, félagar í klassíska kiljuklúbbnum fá sígildar gæðabækur og félagar í Handtöskuseríunni fá skáldsögur eftir konur.

Einnig er hægt að gefa áskrift að ljóðaklúbbi og áskrift að Tímariti Máls og menningar.

Hafið samband við forlagid@forlagid.is eða í síma 575-5600 til að fá nánari upplýsingar um gjafabréf að bókagjöf sem gleður allt árið.

INNskráning

Nýskráning