Á sunnudaginn er mæðradagurinn og því tilvalið fyrir alla syni og dætur að gleðja elsku mömmu sína. Það þarf ekki að vera stórt eða mikið en lítil gjöf gleður alltaf mömmuhjartað.
Í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð er að finna alls kyns bækur, af öllum stærðum og gerðum, frá öllum helstu bókaútgáfum landsins. Þar er til dæmis hægt að finna litlar tækifærisbækur eins og Þúsund draumaráðningar og Þúsund hamingjuspor. Einnig má finna fallegar skáldsögur á viðráðanlegu verði; bæði nýjar og eldri bækur. Hinar vinsælu Karitasbækur Kristínar Marju eru nýkomnar úr endurprentun og ef mamma þín á eftir að lesa þær þá eru þær algjör skyldugjöf.
Dekraðu mömmu þína og kíktu á úrvalið á Fiskislóðinni – það verður opið á laugardaginn kl. 10-14