Snickers

Girnileg uppskrift úr Södd og sátt – án kolvetna

Er virkilega hægt að gera LCHF-snickers? Já, svo sannarlega.

Um 15 bitar

1 dl salthnetur
1 dl ósaltaðar jarðhnetur (eða aðrar ósaltaðar hnetur)
200 g gróft hnetusmjör, sykurlaust
25 g smjör
2 msk erythritol (meira ef þið viljið sætari bita) vanilluduft á hnífsoddi
200 g dökkt súkkulaði (70–85%)
1 msk kókosolía

Grófsaxið hneturnar. Bræðið hnetusmjörið í potti og hrærið svo smjöri, hnetum, sætuefni og vanillu vel saman við.

Klæðið jólakökuform með plastfilmu. Hellið hnetusmjörsblöndunni í formið og setjið það í frysti í a.m.k. tvo tíma, eða þar til blandan er orðin nógu þétt til að hægt sé að skera hana.

Skerið hnetumassann í bita með beittum hníf. Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði með kókosolíunni. Dýfið hnetubitunum ofan í súkkulaðið með tveimur göfflum eða töng og hjúpið þá vel.

Setjið bitana á bökunarpappír og látið þá kólna í ísskápnum.

INNskráning

Nýskráning