Á fimmtudag er útgáfu ævintýrisins um Gilitrutt fagnað í Eymundsson Austurstræti. Bókin er unnin út frá verðlaunasýningu brúðuleikarans Bernds Ogrodnik sem sett verður upp í Þjóðleikhúsinu næstkomandi laugardag. Þar fléttar hann skemmtilega inn í söguna öðru þjóðsagnaminni – sögninni um hrafninn sem gefið er að éta og launar greiðann vel.
Flestir þekkja söguna um Gilitrutt. Jón og Freyja eru nýgift og elska hvort annað af öllu hjarta. Jón er duglegur bóndi sem vinnur frá morgni til kvölds en Freyju finnst best að kúra inni í bæ og gera sem minnst. Þegar gömul kona býðst til þess að vinna fyrir hana ull í vaðmál verður hún himinsæl. Að launum þarf bóndakona einungis að nefna nafn kerlingar en þegar á hólminn er komið er það hægara sagt en gert. Sem betur fer man Jón alltaf eftir því að gefa hrafninum og það borgar sig heldur betur.
Sagan af Gilitrutt birtist fyrst í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Hér birtist hún með glæsilegum ljósmyndum úr brúðusýningu Bernds Ogrodnik sem valin var besta barnasýningin á Grímuverðlaunahátíðinni 2011. Myndvinnslu og bókarhönnun annaðist Kristín María Ingimarsdóttir. Silja Aðalsteinsdóttir bjó íslenska textann til prentunar.
Á myndinni eru brúðugerðarmaðurinn og höfundurinn Bernd Ogrodnik, Eggert Þór Jónsson sem tók ljósmyndirnar af leikmynd og leikbrúðum sýningarinnar fyrir bókina og Kristín María Ingimarsdóttir sem annaðist myndvinnslu og hönnun.