Gerpla á Gljúfrasteini

Gerpla Halldórs Laxness er verk mánaðarins á safni höfundarins á Gljúfrasteini og nk. sunnudag verður þar rætt vítt og breitt um heim þess og boðskap. Leikarinn Björn Thors, sem um þessar mundir fer með hlutverk Þormóðs Bessasonar skálds í uppfræslu Þjóðleikhússins á sögunni, situr m.a. fyrir svörum gesta og fræðir þá um þá miklu vinnu sem fylgir því að sviðsetja „verk sem er ekki hægt að sviðsetja“. Nánari upplýsingar má finna á vef Gljúfrasteins.

INNskráning

Nýskráning