Gerður Kristný verður aðalgestur á þriggja daga langri bókmenntahátíð á Möltu í næstu viku. Dagskrá hátíðarinnar er ansi fjölbreytt en meðal annars heldur Gerður klukkutíma langan upplestur og heldur utan um ritsmiðju.
Gerður er afar duglegur og afkastamikill höfundur en fyrir jólin í fyrra kom út barnahryllingssagan Dúkka og árið þar á undan veglegt ljóðasafn í tilefni af 20 ára skáldaafmæli Gerðar auk nýs ljóðabálks, Drápu, sem gagnrýnendur kepptust um að lofa.
Vænta má spennandi frétta af nýju verki á næstu mánuðum.