Gerður Kristný

Gerður Kristný hlýtur Íslensku bókmenntaverðlaunin

Bókmenntaverðlaun Íslands voru afhent á Bessastöðum í dag. Gerður Kristný hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir ljóðabókina Blóðhófni. Við óskum henni innilega til hamingju með verðlaunin! Verðlaunin voru nú afhent í tuttugusta og annað skiptið. Verðlaunaféð nemur 750 þúsund krónum í hvorum flokki, þ.e. skáldrita og fræðirita. Í flokki fræðirita og bóka almenns efnis hlaut Helgi Hallgrímsson verðlaunin fyrir Sveppabókin – íslenskir sveppir og sveppafræði.

INNskráning

Nýskráning