Gerður Kristný rithöfundur hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Strandir“ í árlegri ljóðasamkeppni lista- og menningarráðs Kópavogs. Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Salnum að kvöldi afmælisdags Jóns úr Vör, 21. janúar.
Ljóðum er skilað inn í samkeppnina undir dulnefni og vissi dómnefnd ekki fyrr en afloknum störfum hennar hver hefði ort þau. Dómnefnd skipuðu Ingibjörg Haraldsdóttir rithöfundur, Sigþrúður Gunnarsdóttur bókmenntafræðingur og Þórarinn Eldjárn rithöfundur, sem var formaður. Dómnefndin komst að einróma niðurstöðu.
Þetta er í níunda sinn sem lista- og menningarráð Kópavogs stendur fyrir ljóðasamkeppni þessari en hugmyndin er upphaflega komin frá félögum úr Ritlistarhópi Kópavogs. Um 300 ljóð bárust í keppnina.
Von er á nýrri ljóðabók frá Gerði Kristnýju síðar á þessu ári.
Vinningsljóð Gerðar:
Strandir
Að vetri
er aðeins fært
hugleiðina
Sængurhvít sveitin
breiðir úr sér
innan við augnlokin
Bjarndýr snuddar í snjó
nær síðasta jaka
til baka