Rithöfundurinn Gerður Kristný hlaut í morgun Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins árið 2010 fyrir skáldsöguna Garðurinn. Ólína Þorvarðardóttir formaður ráðsins og Dagný Kristjánsdóttir prófessor afhentu Gerði verðlaunin sem nema um 1,2 milljón íslenskra króna við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu.
Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að Garðurinn sé „unglingabók, samtímasaga og fortíðarsaga, skrifuð af fagmennsku og sjaldgæfum glæsibrag. Nútíð og fortíð tengjast í mörgum hliðarsögum og mörkin milli hins þekkta og óþekkta eru dregin í efa. Garðurinn gerist í Reykjavík. Gerður Kristný blandar saman ólíkum bókmenntagreinum og beitir aðferðum draugasagna, fantasíu, sálfræðilegra þroskasagna og sögulegra skáldsagna. Íslandssagan leikur stórt hlutverk í skáldsögunni.
Spænska veikin lagðist þungt á Reykjavík. Annar áratugur aldarinnar sem leið er í bakgrunni sögunnar og að honum beinist ótti aðalpersónunnar við hið óþekkta og þau eyðingaröfl sem reynast ekki alltaf koma utan frá heldur geta einnig búið innra með okkur. Í þessari bók tekst höfundinum fagurlega að sameina þekkingu, skemmtun og listrænt gildi.“
Þetta er í fimmta skipti sem verðlaunin eru veitt en þeim er úthlutað annað hvert ár. Dómnefnd barnabókaverðlaunanna skipaði Oddfríður Marni Rasmussen frá Færeyjum, Vera Lise Rosing Olsen frá Grænlandi og prófessor Dagný Kristjánsdóttir frá Íslandi. Auk Garðsins voru barnabækurnar Várferðin til Brúnna frá Færeyjum eftir Rakel Helmsdal og Sila frá Grænlandi eftir Lana Hansen tilnefndar.