Óttar Guðmundsson

Geðveikar hetjur á Súfistanum

Hvaða persónuraskanir og geðsjúkdómar hrjáðu hetjur Íslendingasagnanna? Hvar væru þessar hetjur staddar í nútímasamfélagi, væru þær uppi í dag? Væri Njáll alþingismaður? Væri Grettir handrukkari? Væri Hallgerður framakona?
Óttar Guðmundsson, geðlæknir, ræðir nýútkomna bók sína Hetjur og hugarvíl á bókakaffi Súfistans í Bókabúð Máls og menningar, miðvikudaginn 9. maí kl. 20. Óttar mun ræða tilurð bókarinnar og mat hans á hetjum Íslendingasagnanna. Einnig mun Óttar svara fyrirspurnum og vonandi skapast líflegar umræður um þetta skemmtilega efni.


Allir velkomnir í huggulegt bókakaffi – aðgangur ókeypis!

INNskráning

Nýskráning