Mál og menning gefur út í haust skáldsöguna Meðan enn er glóð, eina heitustu skáldsöguna á bókamessunni í Frankfurt í fyrra. Hún er eftir ungan norskan rithöfund, Gaute Heivoll, og fjallar um brennuvarg sem heldur lítilli sveit í heljargreipum. Bókin hefur vakið mikla athygli í heimalandinu og færði höfundi sínum fyrst Brage-verðlaunin fyrir bestu skáldsögu ársins 2010 og nú í vikunni fékk hann svo hin eftirsóttu Sult-verðlaun upp á 200.000 norskar krónur.
Í viðtali við Aftenposten í Noregi segist Gaute Heivoll ekki hafa hugmynd um hver lykillinn sé að því að skrifa verðlaunabækur eða hvar eigi helst að leita hans. Málið er að þreifa sig áfram og skrifa sem mest áður en sjálfsgagnrýnin rekur upp sinn ljóta haus. Honum finnst best að skrifa snemma á morgnana, milli sex og níu, og það kemur varla fyrir að hann skrifi eftir hádegi. “Konan mín veit alltaf nákvæmlega hvernig mér gengur að skrifa. Enginn er eins hamingjusamur og hamingjusamur rithöfundur og enginn eins óhamingjusamur og óhamingjusamur rithöfundur,” segir hann.