Gamlinginn

Gamlinginn rýkur út!

Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf kom út fyrir þremur dögum og nú þegar hefur verið pöntuð endurprentun á bókinni. Bókin fékk frábæra dóma í Kiljunni á miðvikudagskvöld þar sem fólk brosti hringinn þegar það fjallaði um bókina. Ekki kemur á óvart að bókin skuli slá í gegn enda er hún bráðfyndin, ærslafull og eins og Páll Baldvin sagði í Kiljunni, fólk hlær upphátt að þessum gamlingja sem minnir á blöndu af Forrest Gump og Góða dátanum Svejk.

Enn er hægt að næla sér í eintök í búðum og von bráðar mun endurprentun á bókinni koma í hús svo að allir fái notið gamlingjans sem kann svo sannarlega að gleðja íslensk hjörtu.

INNskráning

Nýskráning