Jonas Jonasson

Gamlinginn kvikmyndaður

Tökur ganga vel á kvikmyndinni eftir hinni ofurvinsælu skáldsögu Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf eftir Jonas Jonasson. Útisenur verða teknir núna í lok apríl og frumsýning er áætluð á sjálfan jóladag í Svíþjóð. Þegar eru í gangi samningaviðræður um endurgerð myndarinnar á ensku. Framleiðendur ætla að kynna myndina í Cannes núna í maí og þá á meðal annars að hafa til sýnis eintök af Gamlingjanum á öllum þeim fjölmörgu tungumálum sem hann hefur komið út á.  Þar verða að sjálfsögðu bæði innbundin útgáfa á Gamlingjanum á íslensku og kiljan.

Leikstjóri myndarinnar er Felix Herngren en framleiðandi er Sigurjón Sighvatsson. Allan Karlsson, gamlingjann sjálfan, leikur Robert Gustafsson sem kallaður hefur verið fyndnasti maður Svíþjóðar. Bókin hefur selst í milljónum eintaka um allan heim svo það eru allar líkur á að kvikmyndin verði vinsæl.

INNskráning

Nýskráning