Gæludýr í Argentínu

Argentínumenn eru frægir fyrir sitthvað fleira en fótafimi og nautakjöt – og þeir hafa víst fínan smekk fyrir góðum bókum. Á dögunum fastnaði argentínska forlagið Bajo la Luna sér útgáfuréttinn á skáldsögu Braga Ólafssonar, Gæludýrunum, sem kom út hér heima árið 2001. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár. Það er býsna sjaldgæft að suður-amerískir útgefendur leggi sig eftir íslenskum skáldverkum en spænsk forlög hafa á stundum annast dreifingu þeirra þarna syðra.

Gæludýrin hans Braga hafa nú drepið niður fæti í alls fjórum álfum en útgáfuréttur bókarinnar hefur þegar verið seldur til Danmerkur, Þýskalands, Bandaríkjanna, Kanada, Bretlands og Ástralíu.

INNskráning

Nýskráning